Barnavernd Reykjavíkur - Eftirlit
Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir starfsmanni í eftirlit Barnaverndar.
Eftirlit sinnir t.a.m. eftirliti í umgengni með börnum sem vistuð eru á vegum barnaverndarnefndar, útköllum með ráðgjöfum og eftirliti með heimilum fjölskyldna sem njóta stuðnings Barnaverndar Reykjavíkur.
Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir starfsmanni í eftirlit Barnaverndar.
Eftirlit sinnir t.a.m. eftirliti í umgengni með börnum sem vistuð eru á vegum barnaverndarnefndar, útköllum með ráðgjöfum og eftirliti með heimilum fjölskyldna sem njóta stuðnings Barnaverndar Reykjavíkur.
Eftirlitsaðilar vinna tveir og tveir saman á vöktum alla daga vikunnar. Unnið er í nokkra daga og hvíld í nokkra daga. Um er að ræða 80% og 65% störf. Starfsmenn hafa bifreið til umráða á vinnutíma.
Leitað er að heiðarlegum, nærgætnum og úrræðagóðum starfsmönnum sem eru tilbúnir að fást við krefjandi verkefni í samvinnu við ráðgjafa Barnaverndar Reykjavíkur.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit í umgengni, útköll, og eftirlit með heimilum
- Mat á aðstæðum og skráningar í málaskrárkerfi Barnaverndar Reykjavíkur
- Stuðningur og aðstoð við ráðgjafa Barnaverndar Reykjavíkur
Menntunar - og hæfniskröfur
- Reynsla og þekking á starfsemi barnaverndar er æskileg
- Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af löggæslu er kostur
- Reynsla og þekking af vinnu með börnum og/eða fólki með neysluvanda eða geðrænan vanda er kostur
- Færni í rituðu máli
- Framúrskarandi lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Ökuréttindi
- Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Frekari upplýsingar um starfið veitir
Heiða Hraunberg Þorleifsdóttir í síma 411-9200 eða tölvupósti heida.hraunberg.thorleifsdottir@reykjavik.is