Öflugur stuðningsráðgjafi óskast til starfa
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og drífandi einstaklingi í starf stuðningsráðgjafa á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.
Skammtímadvölin Hólaberg 86 leitar að metnaðarfullum og jákvæðum stuðningsráðgjafa til starfa í skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Í Hólabergi er veitt sólarhringsþjónusta og dvelja að jafnaði fimm börn og ungmenni í einu. Mikil áhersla er lögð á hlýlegt og heimilislegt umhverfi. Hólaberg lokar í 4 vikur yfir sumartímann.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst og er starfshlutfall 38% þar sem unnið er á dag,- kvöld,- og helgarvöktum.
Stuðningsráðgjafi vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra sem þjónustað er.
Helstu verkefni og ábyrgð stuðningsráðgjafa
- Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs
- Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku
- Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðar
- Tekur þátt í að fræða og leiðbeina öðru starfsfólki í samstarfi við stjórnendur
- Framfylgir og aðstoðar starfsfólk við að framfylgja einstaklingsáætlunum í samráði við stjórnendur
- Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, annað starfsfólk og aðstandendur
- Önnur verkefni sem kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði heilbrigðis, mennta- og/eða félagsvísinda
- Reynsla af starfi með fötluðum börnum æskileg
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta (B2 eða hærri í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborga
Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Clara Magnúsdóttir
Tölvupóstfang: Helga.Clara.Magnusdottir@reykjavik.is
Vinnusími: 411-9514