Til baka á starfasíðu

Öflugur stuðningsráðgjafi óskast til starfa

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og drífandi einstaklingi í starf stuðningsráðgjafa á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.

Hlutastarf Skammtímadvöl Hólaberg 86 112
Sækja um

Skammtímadvölin Hólaberg 86 leitar að metnaðarfullum og jákvæðum stuðningsráðgjafa til starfa í skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Í Hólabergi er veitt sólarhringsþjónusta og dvelja að jafnaði fimm börn og ungmenni í einu. Mikil áhersla er lögð á hlýlegt og heimilislegt umhverfi. Hólaberg lokar í 4 vikur yfir sumartímann. 

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst og er starfshlutfall 38% þar sem unnið er á dag,- kvöld,- og helgarvöktum. 

Stuðningsráðgjafi vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra sem þjónustað er.

Helstu verkefni og ábyrgð stuðningsráðgjafa

  • Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs
  • Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku
  • Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðar
  • Tekur þátt í að fræða og leiðbeina öðru starfsfólki í samstarfi við stjórnendur
  • Framfylgir og aðstoðar starfsfólk við að framfylgja einstaklingsáætlunum í samráði við stjórnendur
  • Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, annað starfsfólk og aðstandendur
  • Önnur verkefni sem kunna að vera falin af yfirmanni.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði heilbrigðis, mennta- og/eða félagsvísinda
  • Reynsla af starfi með fötluðum börnum æskileg
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta (B2 eða hærri í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborga

Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Clara Magnúsdóttir 

Tölvupóstfang: Helga.Clara.Magnusdottir@reykjavik.is

Vinnusími: 411-9514

Sækja um