Back to the jobs page

Rafvirkjameistari / Rafiðnfræðingur

Umhverfis- og skipulagssvið leitar að drífandi einstaklingi til að hafa umsjón og eftirlit með rafmagnsmálum í fasteignum Reykjavíkurborgar.

Fullt starf Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónus 105
Apply

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu leitar að reyndum og færum rafvirkjameistara og rafiðnfræðingi til starfa á skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu. Starfið felur í sér umsjón með rafmagnsmálum og tengdum verkefnum í fasteignum í eigu og umsjón Reykjavíkurborgar. Verkefnin krefjast þverfaglegrar samvinnu bæði innana fagsviða borgarinnar sem og annarra hagsmunaaðila.

Verkefni deildarinnar eru meðal annars að hafa yfirumsjón með nýframkvæmdum, nýbyggingum og viðhaldi á eignasani Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru fjölbreytt og hafa tengingu við Græna planið, heildarstefnu borgarinnar í fjáfestingum og lykilverkefnum í borgarumhverfinu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Löggild meistaréttindi í rafvirkjun.
  • Lokapróf í rafiðnfræði.
  • Aukin menntun á fagsviði kostur.
  • 10 ára reynsla á fagsviðinu.
  • Góð færni í mannlegum og rituðum samskiptum.
  • Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Haldbær reynsla af tæknimálum, viðhaldi og rekstri tæknibúnaðar.
  • Haldbær þekking á helstu stjórnkerfum raflagna, s.s. ljósakerfum, virkni iðntölva, hraða- og tíðnibreyta og annarra helstu stýrikerfa.
  • Haldbær þekking á út- og neyðarlýsingu ásamt þekkingu á hönnun lýsingar.
  • Íslenskukunnátta C1 í samræmi við í samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta B2.

Verksvið

  • Viðbragðsþjónusta.
  • Verkefnastjórnun.
  • Meistaraábyrgð gagnvart Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Orkuveitu Reykjavíkur.
  • Ástandsmat raflagna og búnaðar.
  • Gerð viðhaldsáætlana, annarra áætlana og útboða.
  • Eftirlit og samvinna með verktökum og rekstraraðilum.
  • Leiðbeinandi hlutverk gagnvart rafverktökum um tæknilegar úrlausnir verkefna.

Nánar um starfið

  • Um er að ræða fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu.
  • Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
  • Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Pálsson með því að senda tölvupóst á Ragnar.Palsson@reykjavik.is.
  • Umsóknarfrestur er til og með 10 september 2026.
Apply