Rafvirkjameistari / Rafiðnfræðingur
Umhverfis- og skipulagssvið leitar að drífandi einstaklingi til að hafa umsjón og eftirlit með rafmagnsmálum í fasteignum Reykjavíkurborgar.
Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu leitar að reyndum og færum rafvirkjameistara og rafiðnfræðingi til starfa á skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu. Starfið felur í sér umsjón með rafmagnsmálum og tengdum verkefnum í fasteignum í eigu og umsjón Reykjavíkurborgar. Verkefnin krefjast þverfaglegrar samvinnu bæði innana fagsviða borgarinnar sem og annarra hagsmunaaðila.
Verkefni deildarinnar eru meðal annars að hafa yfirumsjón með nýframkvæmdum, nýbyggingum og viðhaldi á eignasani Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru fjölbreytt og hafa tengingu við Græna planið, heildarstefnu borgarinnar í fjáfestingum og lykilverkefnum í borgarumhverfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggild meistaréttindi í rafvirkjun.
- Lokapróf í rafiðnfræði.
- Aukin menntun á fagsviði kostur.
- 10 ára reynsla á fagsviðinu.
- Góð færni í mannlegum og rituðum samskiptum.
- Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Haldbær reynsla af tæknimálum, viðhaldi og rekstri tæknibúnaðar.
- Haldbær þekking á helstu stjórnkerfum raflagna, s.s. ljósakerfum, virkni iðntölva, hraða- og tíðnibreyta og annarra helstu stýrikerfa.
- Haldbær þekking á út- og neyðarlýsingu ásamt þekkingu á hönnun lýsingar.
- Íslenskukunnátta C1 í samræmi við í samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta B2.
Verksvið
- Viðbragðsþjónusta.
- Verkefnastjórnun.
- Meistaraábyrgð gagnvart Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Orkuveitu Reykjavíkur.
- Ástandsmat raflagna og búnaðar.
- Gerð viðhaldsáætlana, annarra áætlana og útboða.
- Eftirlit og samvinna með verktökum og rekstraraðilum.
- Leiðbeinandi hlutverk gagnvart rafverktökum um tæknilegar úrlausnir verkefna.
Nánar um starfið
- Um er að ræða fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu.
- Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
- Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Pálsson með því að senda tölvupóst á Ragnar.Palsson@reykjavik.is.
- Umsóknarfrestur er til og með 10 september 2026.