Verkefnistjóri leyfisveitinga
Verkefnisstjóri starfar í teymi sérfræðinga sem sjá meðal annars um útgáfu og eftirlit með afnotaleyfum á borgarlandinu, leyfisveitingum og eftirliti vegna götu- og torgsölu og gerð framkvæmdaheimilda.
Skrifstofa stjórnsýslu og gæða óskar eftir að ráða í starf verkefnisstjóra við leyfisveitingar vegna afnota í borgarlandi og falla verkefnin undir deild afnota og eftirlits.
Verkefnisstjóri leyfisveitinga verður hluti af teymi sem vinnur markvist að því að einfalda þjónustuferla í samræmi við stefnu umhverfis- og skipulagssviðs og starfar í teymi sérfræðinga sem sjá meðal annars um útgáfu og eftirlit með afnotaleyfum á borgarlandinu, leyfisveitingar og eftirlit vegna götu- og torgsölu, daglegt veghald, öryggismál og vinnusvæðamerkingar. Um er að ræða starf við krefjandi og áhugaverð viðfangsefni í líflegu starfsumhverfi þar sem þjónustulund, liðsheild og samvinna einkenna úrlausn fjölbreytilegra verkefna. Í boði er gott vinnuumhverfi á fjölskylduvænum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þátttaka í umbótarverkefnum og stefnu deildar í samráði við stjórnanda.
• Leyfisveitingar á borgarlandi vegna framkvæmda, viðburða, afnota eða götu- og torgsölu.
• Eftirlit, úttektir, upplýsingagjöf, ferlagerð og ráðgjöf vegna málaflokksins.
• Formleg og bein samskipti við íbúa, framkvæmda- ábyrgðar, og hagsmunaaðila.
• Yfirferð, umsagnir, vinnsla, eftirfylgni, skjölun og miðlun gagna er varða leyfisumsóknir og eftirlit.
• Eftirlit með vinnusvæðamerkingum og fræðsla til starfsmanna stofnunar, þjónustuþega sem og annarra hagaðila.
• Ýmis tilfallandi sérverkefni.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Skipulagsfærni og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
- Ferla- og lausnarmiðuð hugsun og áhugi af verkefna- og umbótavinnu í teymum.
- Þekking af verkferlavinnu.
- Þekkingu á skipulags- og byggingalögum er kostur.
- Góð færni til að setja fram mál í ræðu og riti.
- Færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist tækni- og skrifstofustörfum.
- Frumkvæði, þjónustulund og árangursdrifin hugsun.
- Íslenskukunnátta C1-C2 skv. og enskukunnátta B2-C1. í samræmi við samevrópska tungumálarammann
- Ökuréttindi.
Nánar um starfið
- Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem auðga mannlíf í Reykjavík. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg. Starfsfólk sviðsins gegnir lykilhlutverki með fagþekkingu sinni og framlagi að þróun öruggrar, sjálfbærrar og aðlaðandi borgar.
- Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
- Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2026.
- Nánari upplýsingar veitir Björgvin Rafn Sigurðsson Bjorgvin.Rafn.Sigurdarson@reykjavik.is deildarstjóri afnota og eftirlitsdeildar.