Til baka á starfasíðu

Verkefnistjóri leyfisveitinga

Verkefnisstjóri starfar í teymi sérfræðinga sem sjá meðal annars um útgáfu og eftirlit með afnotaleyfum á borgarlandinu, leyfisveitingum og eftirliti vegna götu- og torgsölu og gerð framkvæmdaheimilda.

Fullt starf Skrifstofa stjórnsýslu og gæða 105
Sækja um

Skrifstofa stjórnsýslu og gæða óskar eftir að ráða í starf verkefnisstjóra við leyfisveitingar vegna afnota í borgarlandi og falla verkefnin undir deild afnota og eftirlits.

Verkefnisstjóri leyfisveitinga verður hluti af teymi sem vinnur markvist að því að einfalda þjónustuferla í samræmi við stefnu umhverfis- og skipulagssviðs og starfar í teymi sérfræðinga sem sjá meðal annars um útgáfu og eftirlit með afnotaleyfum á borgarlandinu, leyfisveitingar og eftirlit vegna götu- og torgsölu, daglegt veghald, öryggismál og vinnusvæðamerkingar. Um er að ræða starf við krefjandi og áhugaverð viðfangsefni í líflegu starfsumhverfi þar sem þjónustulund, liðsheild og samvinna einkenna úrlausn fjölbreytilegra verkefna. Í boði er gott vinnuumhverfi á fjölskylduvænum vinnustað.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Þátttaka í umbótarverkefnum og stefnu deildar í samráði við stjórnanda.

• Leyfisveitingar á borgarlandi vegna framkvæmda, viðburða, afnota eða götu- og torgsölu.

• Eftirlit, úttektir, upplýsingagjöf, ferlagerð og ráðgjöf vegna málaflokksins.

• Formleg og bein samskipti við íbúa, framkvæmda- ábyrgðar, og hagsmunaaðila.

• Yfirferð, umsagnir, vinnsla, eftirfylgni, skjölun og miðlun gagna er varða leyfisumsóknir og eftirlit.

• Eftirlit með vinnusvæðamerkingum og fræðsla til starfsmanna stofnunar, þjónustuþega sem og annarra hagaðila.

• Ýmis tilfallandi sérverkefni.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Skipulagsfærni og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Ferla- og lausnarmiðuð hugsun og áhugi af verkefna- og umbótavinnu í teymum.
  • Þekking af verkferlavinnu. 
  • Þekkingu á skipulags- og byggingalögum er kostur.
  • Góð færni til að setja fram mál í ræðu og riti.
  • Færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist tækni- og skrifstofustörfum.
  • Frumkvæði, þjónustulund og árangursdrifin hugsun.
  • Íslenskukunnátta C1-C2 skv. og enskukunnátta B2-C1. í samræmi við samevrópska tungumálarammann
  • Ökuréttindi.

Nánar um starfið

  • Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem auðga mannlíf í Reykjavík. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg. Starfsfólk sviðsins gegnir lykilhlutverki með fagþekkingu sinni og framlagi að þróun öruggrar, sjálfbærrar og aðlaðandi borgar.
  • Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
  • Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2026
  • Nánari upplýsingar veitir Björgvin Rafn Sigurðsson Bjorgvin.Rafn.Sigurdarson@reykjavik.is deildarstjóri afnota og eftirlitsdeildar.
Sækja um