Stuðningsfulltrúi fyrir fötluð börn og ungmenni
Skammtímadvöl Holtavegur 27 leitar að metnaðarfullum og jákvæðum stuðningsfulltrúa til starfa með fötluðum börnum og ungmennum.
Á Holtavegi 27 er veitt þjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni. Mikil áhersla er lögð á að skapa hlýlegt, heimilislegt og öruggt umhverfi. Stuðningsfulltrúar vinna samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, styrkja jákvæða sjálfsmynd og stuðla að auknum lífsgæðum.
Í boði er 30-40% starf og unnið er á stuttum morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og sjálfshjálp.
- Sinnir umönnun, fylgist með andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga og veitir aðstoð varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum.
- Styður einstaklinga til virkrar þátttöku í samfélaginu, meðal annars með því að efla félagstengsl og taka þátt í afþreyingu, menningar- og íþróttastarfi.
- Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
- Sinnir skráningu og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
- Tekur þátt í fundum og teymisvinnu sem tengjast starfinu.
- Sinnir öðrum verkefnum samkvæmt nánari ákvörðun yfirmanns.
Hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með börnum, ungmennum eða fötluðu fólki er æskileg.
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf.
- Frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Bílpróf.
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Íslenskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elínborg Þrastardóttir, forstöðkona, í tölvupósti elinborg.thrastardottir@reykjavik.is eða í síma 6648997 á venjulegum skrifstofutíma.