Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi fyrir fötluð börn og ungmenni

Skammtímadvöl Holtavegur 27 leitar að metnaðarfullum og jákvæðum stuðningsfulltrúa til starfa með fötluðum börnum og ungmennum.

Hlutastarf Skammtímadvöl Holtavegur 27 104
Sækja um

Á Holtavegi 27 er veitt þjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni. Mikil áhersla er lögð á að skapa hlýlegt, heimilislegt og öruggt umhverfi. Stuðningsfulltrúar vinna samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, styrkja jákvæða sjálfsmynd og stuðla að auknum lífsgæðum.

Í boði er 30-40% starf og unnið er á stuttum morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og sjálfshjálp.
  • Sinnir umönnun, fylgist með andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga og veitir aðstoð varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum.
  • Styður einstaklinga til virkrar þátttöku í samfélaginu, meðal annars með því að efla félagstengsl og taka þátt í afþreyingu, menningar- og íþróttastarfi.
  • Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Sinnir skráningu og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
  • Tekur þátt í fundum og teymisvinnu sem tengjast starfinu.
  • Sinnir öðrum verkefnum samkvæmt nánari ákvörðun yfirmanns.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum, ungmennum eða fötluðu fólki er æskileg.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf.
  • Frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Bílpróf.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Íslenskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elínborg Þrastardóttir, forstöðkona, í tölvupósti elinborg.thrastardottir@reykjavik.is eða í síma 6648997 á venjulegum skrifstofutíma.

Sækja um