Stuðningur í sérkennslu
Stuðningur í sérkennslu oskast í leikskólann Jörfa.
Við í Jörfa óskum eftir metnaðarfullum starfsmanni í sérkennsluteymið okkar. Helstu verkefni eru að vinna í teymi sérkennslunnar og veita þeim börnum sem og deildum stuðning til þess að allir geti notið sín í námi. Það sem þarf að vinna að hverju sinni í samstarfi við sérkennslustjóra og aðra í sérkennsluteymi. Starfinu fylgir samskipti við foreldra og samstarf um velferð barna.
Leikskólinn Jörfi er 7 deilda leikskóli. Leikskólanum er skipt upp í eldri deildir á aldrinum 3-5 ára - Jörfi við Hæðargarð 27a og ungbarnadeildir á aldrinum 1-2 ára - Litli Jörfi við Bústaðaveg 81.
Aðbúnaður og staðsetning leikskólans er góð með ýmsum möguleikum til útivistar. Í göngufæri eru, Grundagerðisgarður, Úlfaskógur, Hákonarlundur, Elliðaárdalur, Fossvogsdalur og Laugardalur ásamt mörgum öðrum grænum svæðum og görðum.
Leikskólinn Jörfi er í innleiðingarferli á nýrri skólastefnu í anda Reggio Emilia. Ein af megináherslunum Reggio Emilia hugmyndafræði er á að virða sjónarhorn barna, hvetja þau til sköpunar og efla rannsóknargleði í gegnum leik og samskipti.
Einkunnarorð skólans eru: Gleði-Sköpun-Virðing.
Skólinn er í samstarfi við Íþróttafélagið Víking, Tónskóla Sigursveins
Við hvetjum alla áhugasama að kíkja á heimasíðuna og Instagram síðu Jörfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita barni leiðsögn og stuðning í samskipti við önnur börn og í frjálsum leik
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að sinna þeim verkefnum og öðrum störfum innan leikskólans.
Hæfniskröfur
- Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi
- 36 stunda vinnuvika
- Frír hádegismatur
- Sundkort sem veitir ókeypis aðgang að 7 sundlaugum
- Menningarkort sem veitir ókeypis aðgang að söfnum borgarinnar
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Frekari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Vessela Dukova.
Starfið er laust nú þegar en ráðið er eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Leikskólinn Jörfi
Hæðargarður27a
108 Reykjavík