Þroskaþjálfi í Virknimiðstöð Reykjavíkur
Vilt þú taka þátt í að móta og þróa þjónustu fyrir fatlað fólk?
Virknimiðstöð Reykjavíkur leitar að öflugum þroskaþjálfa sem hefur áhuga á valdeflandi starfi og vill taka virkan þátt í að þróa þjónustu þar sem sjálfræði, þátttaka og lífsgæði eru í forgrunni.
Við leitum að einstaklingi sem vill nýta fagþekkingu sína í fjölbreyttu og skapandi starfsumhverfi og hafa áhrif á þróun starfseminnar í samstarfi við þátttakendur, samstarfsfólk og stjórnendur.
Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi, ásamt smíðastofunni SmíRey, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar, með áherslu á skapandi, valdeflandi og styðjandi umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita valdeflandi og einstaklingsmiðaðan stuðning með áherslu á sjálfræði, þátttöku og aukin lífsgæði.
- Taka virkan þátt í faglegri mótun og þróun starfseminnar.
- Vera leiðandi í innleiðingu og eftirfylgd faglegra vinnubragða og hugmyndafræði.
- Vinna að gerð, framkvæmd og endurskoðun einstaklingsbundinna áætlana.
- Veita samstarfsfólki faglega ráðgjöf, fræðslu og leiðsögn.
- Taka þátt í og leiða teymisvinnu og þróunarverkefni.
- Nýta fagþekkingu til að greina tækifæri til umbóta og þróunar þjónustunnar.
- Eiga samstarf við þátttakendur, samstarfsfólk, aðstandendur og aðra fagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
- Þekking og reynsla af Tákn með tali og öðrum óhefðbundnum tjáskiptaleiðum er æskileg.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og áhugi á faglegri þróun.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Við bjóðum
- Tækifæri til að hafa áhrif á mótun og þróun starfseminnar.
- Fjölbreytt og faglega krefjandi verkefni.
- Starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, frumkvæði og þróun.
- Tækifæri til að nýta fagþekkingu þroskaþjálfa til að efla sjálfræði, þátttöku og lífsgæði fatlaðs fólks.
Starfið er staðsett að Skeifunni 8, á annarri hæð.
Opnunartími: kl. 8:30–16:00. Vinnuvikan er 36 stundir.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður, (hanna.kristin.sigurdardottir@reykjavik.is) eða Skúlína Vigdísardóttir, deildarstjóri, (skulina.vigdisardottir@reykjavik.is).