Til baka á starfasíðu

Þroskaþjálfi í Virknimiðstöð Reykjavíkur

Vilt þú taka þátt í að móta og þróa þjónustu fyrir fatlað fólk?

Virknimiðstöð Reykjavíkur leitar að öflugum þroskaþjálfa sem hefur áhuga á valdeflandi starfi og vill taka virkan þátt í að þróa þjónustu þar sem sjálfræði, þátttaka og lífsgæði eru í forgrunni.

Fullt starf Virknimiðstöð - Smiðjan 112
Sækja um

Við leitum að einstaklingi sem vill nýta fagþekkingu sína í fjölbreyttu og skapandi starfsumhverfi og hafa áhrif á þróun starfseminnar í samstarfi við þátttakendur, samstarfsfólk og stjórnendur.

Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi, ásamt smíðastofunni SmíRey, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar, með áherslu á skapandi, valdeflandi og styðjandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita valdeflandi og einstaklingsmiðaðan stuðning með áherslu á sjálfræði, þátttöku og aukin lífsgæði.
  • Taka virkan þátt í faglegri mótun og þróun starfseminnar.
  • Vera leiðandi í innleiðingu og eftirfylgd faglegra vinnubragða og hugmyndafræði.
  • Vinna að gerð, framkvæmd og endurskoðun einstaklingsbundinna áætlana.
  • Veita samstarfsfólki faglega ráðgjöf, fræðslu og leiðsögn.
  • Taka þátt í og leiða teymisvinnu og þróunarverkefni.
  • Nýta fagþekkingu til að greina tækifæri til umbóta og þróunar þjónustunnar.
  • Eiga samstarf við þátttakendur, samstarfsfólk, aðstandendur og aðra fagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
  • Þekking og reynsla af Tákn með tali og öðrum óhefðbundnum tjáskiptaleiðum er æskileg.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og áhugi á faglegri þróun.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Við bjóðum

  • Tækifæri til að hafa áhrif á mótun og þróun starfseminnar.
  • Fjölbreytt og faglega krefjandi verkefni.
  • Starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, frumkvæði og þróun.
  • Tækifæri til að nýta fagþekkingu þroskaþjálfa til að efla sjálfræði, þátttöku og lífsgæði fatlaðs fólks.

Starfið er staðsett að Skeifunni 8, á annarri hæð.

Opnunartími: kl. 8:30–16:00. Vinnuvikan er 36 stundir.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður, (hanna.kristin.sigurdardottir@reykjavik.is) eða Skúlína Vigdísardóttir, deildarstjóri, (skulina.vigdisardottir@reykjavik.is).

Sækja um