Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi í hlutastarf í Grafarholti

Íbúðakjarni Þórðarsveigi 1, óskar tímabundið eftir frábæru fólki í skemmtilegt og fjölbreytt hlutastarf .

Óskilgreint hlutfall Íbúðakjarni Þórðarsveig 1 113
Apply

Velferðarsvið óskar eftir að ráða starfsmenn í íbúðakjarna Þórðarsveigi 1.

Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára. Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er bæði kvöld og helgar. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða vinnu í íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun, 40 ára og eldri í Grafarholti.

Verið er að leita eftir fólki til að vinna í vaktavinnu, það eru dagvaktir, kvöldvaktir og í einhverjum tilfellum næturvaktir.

Í kjarnanum eru 6 einstaklingsíbúðir. Vinnan gengur út á að aðstoða íbúa við allar helstu athafnir daglegs lífs.

Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn með það að markmiði að efla sjálfstætt líf einstaklinga.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg en ekki skilyrði.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Umhyggja og þolinmæði.
  • Bílpróf 
  • Íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.

Fríðindi í starfi

· Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar

· Heilsustyrkur

· Samgöngustyrkur

· 36 stunda vinnuvika

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis

Apply