Back to the jobs page

Stuðningsráðgjafi í íbúðakjarna í Norðlingaholti

Austurmiðstöð auglýsir eftir metnaðarfullum stuðningsráðgjafa í 80-100% starf á íbúðakjarna fyrir fatlaðfólk í Norðlingaholti. Markmið þjónustunnar er að veita íbúum aðstoð til sjálfstæðs og innihaldsríks lífs, innan sem utan heimilis. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. 

Fullt starf Íbúðakjarni Elliðabraut 12 110
Apply

Í starfi stuðningsráðgjafa er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu í anda hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf og aðferðir þjónandi leiðsagnar. Markmiðið er að gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og félagslíf, og lifa í samfélaginu án aðgreiningar. Þjónustan miðar að því að auka lífsgæði og sjálfstæði íbúa með því að efla færni þeirra, stuðla að jákvæðum samskiptum og jákvæðri sjálfsmynd. Um er að ræða vaktavinnu, dag, kvöld og helgarvaktir, þar sem unnið er aðra hverja helgi.

Verkefni og ábyrgð

  • Sinna faglegu starfi í samstarfi og samráði við íbúa, forstöðumann og teymisstjóra.
  • Veita samstarfsstarfsmönnum leiðsögn og tilsögn um framkvæmd þjónustu.
  • Sinna einstaklingsmiðaðri þjónustu og aðstoða íbúa við allar daglegar athafnir.
  • Þátttaka í gerð og eftirfylgd einstaklingsáætlana.
  • Tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu.
  • Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda.
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda
  • Þekking og reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum og/eða öldruðum æskileg.
  • Reynsla af stjórnun kostur.
  • Reynsla og þekking af teymisvinnu æskileg.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta B2 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgir Freyr Birgisson, forstöðumaður, birgir.freyr.birgisson@reykjavik.is s. 8214600.

Apply