Back to the jobs page

Félagsmiðstöðvastarfsmaður 50-100%

Félagsmiðstöðin Hólmasel óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling í 50-100% starf sem frístundaleiðbeinandi eða frístundaráðgjafi. Starfið er fjölbreytt, gefandi og skemmtilegt með börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára. Unnið er bæði á daginn og kvöldin í undirbúningi og á opnunum félagsmiðstöðva.

Hlutastarf Félagsmiðstöðin Hólmasel 112
Apply

Félagsmiðstöðin Hólmasel óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling með reynslu sem nýtist í starfi. 

Markmið félagsmiðstöðva er að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Hólmasel þjónustar börn og unglinga í Seljaskóla og Ölduselsskóla í 109 Reykjavík (frekari upplýsingar: Hólmasel | Reykjavik ).

Starfið hefst 24.ágúst 2026. Um er ræða 50-100% starf sem fer fram bæði á daginn og kvöldin. Mikilvægt er að umsækjandi geti unnið a.m.k. mánudaga kl.17-22, þriðjudaga kl.14:20-16:40, miðvikudaga kl.14-22 og annan hvern föstudag kl.16:30-23. Meiri vinna er einnig í boði.

Um er að ræða tímabundna ráðningu frá ágúst 2026 - júní 2027.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára ásamt forstöðumanni, aðstoðarforstöðumanni og starfsfólki.
  • Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
  • Veita börnum með einstakar þarfir leiðsögn og stuðning.
  • Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
  • Skipulagning og umsjón með sértæku hópastarfi á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
  • Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við forstöðumann, starfsmenn og ungmenni út frá viðmiðum og starfsreglum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
  • Reynsla af frístundastarfi.
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.
  • Skipulagshæfileikar og hæfni í samskiptum.
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi í félagsmiðstöð.
  • Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
  • 20 ára eða eldri. 
  • Góð íslenskukunnátta (B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum). 
  • Fjölbreytt tungumálakunnátta kostur.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja umsókn.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags (sameyki.is)

Starfshlutfall              50 – 100 %

Ráðningarform          Tímabundin ráðning

Nafn sviðs                 Skóla- og frístundasvið

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sif Ómarsdóttir, forstöðumaður Hólmasel, netfang: sif.omarsdottir@reykjavik.is

Apply