Félagsmiðstöðvastarfsmaður 50-100%
Félagsmiðstöðin Hólmasel óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling í 50-100% starf sem frístundaleiðbeinandi eða frístundaráðgjafi. Starfið er fjölbreytt, gefandi og skemmtilegt með börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára. Unnið er bæði á daginn og kvöldin í undirbúningi og á opnunum félagsmiðstöðva.
Félagsmiðstöðin Hólmasel óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling með reynslu sem nýtist í starfi.
Markmið félagsmiðstöðva er að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Hólmasel þjónustar börn og unglinga í Seljaskóla og Ölduselsskóla í 109 Reykjavík (frekari upplýsingar: Hólmasel | Reykjavik ).
Starfið hefst 24.ágúst 2026. Um er ræða 50-100% starf sem fer fram bæði á daginn og kvöldin. Mikilvægt er að umsækjandi geti unnið a.m.k. mánudaga kl.17-22, þriðjudaga kl.14:20-16:40, miðvikudaga kl.14-22 og annan hvern föstudag kl.16:30-23. Meiri vinna er einnig í boði.
Um er að ræða tímabundna ráðningu frá ágúst 2026 - júní 2027.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára ásamt forstöðumanni, aðstoðarforstöðumanni og starfsfólki.
- Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
- Veita börnum með einstakar þarfir leiðsögn og stuðning.
- Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Skipulagning og umsjón með sértæku hópastarfi á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
- Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við forstöðumann, starfsmenn og ungmenni út frá viðmiðum og starfsreglum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur.
Hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
- Reynsla af frístundastarfi.
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.
- Skipulagshæfileikar og hæfni í samskiptum.
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi í félagsmiðstöð.
- Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
- 20 ára eða eldri.
- Góð íslenskukunnátta (B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum).
- Fjölbreytt tungumálakunnátta kostur.
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja umsókn.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags (sameyki.is)
Starfshlutfall 50 – 100 %
Ráðningarform Tímabundin ráðning
Nafn sviðs Skóla- og frístundasvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sif Ómarsdóttir, forstöðumaður Hólmasel, netfang: sif.omarsdottir@reykjavik.is