Back to the jobs page

Aðstoðarleikskóla- og verkefnastjóri í Hraunborg

Leikskólinn Hraunborg auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn að leiða áfram metnaðarfullt starf í Hraunborg ásamt stjórnendateymi leikskólans. 

Fullt starf Leikskólinn Hraunborg 110
Apply

Hraunborg er þriggja deilda leikskóli sem er staðsettur í Hraunbergi 10 í Breiðholti í Reykjavík. Leikskólinn er staðsettur í jaðri Elliðaársdals og stutt er í skemmtilegar gönguleiðir og opin náttúrusvæði. Í leikskólanum er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi, málörvun, frjálsan leik, hreyfingu, útiveru, félagsfærni, sköpun og sjálfseflingu. Starfað er í anda sjálfstjórnunarkenninga um Jákvæðan aga og í anda heiltækar skólastefnu með fjölbreyttum starfsháttum og viðfangsefnum til að koma til móts við þarfir ólíkra einstaklinga.

Einkunnarorð Hraunborgar og leiðarljós í starfi eru: Leikur, læsi og lífsgleði.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni og lipurð í samskiptum, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi og vera tilbúin að leiða faglega forystu. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi og um er að ræða ótímabundið starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vera faglegur leiðtogi, stuðningur og leiðsögn við deildarstjóra og aðra starfsmenn leikskólans.
  • Vinna ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun auk skipulagningar kennslu- og uppeldsstarfsins.
  • Staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
  • Virkur þátttakandi í mótun stefnu leikskólans og áætlunargerð með leikskólastjóra.
  • Sjá um samskipti og samvinna við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
  • Sinna öðrum þeim verkefnum sem leikskólastjóri felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða
  • Lipurð og hæfni í samskiptum
  • Sjálfstæði og frumkvæði
  • Reynsla af starfi í leikskólum nauðsynleg
  • Góð tölvukunnátta æskileg
  • Hreint sakavottorð
  • Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Stjórnendur í leikskólum borgarinnar eru hluti af fjölmennu teymi fagfólks öflugu lærdómssamfélagi.

Fríðindi í starfi:

  • 36 stunda vinnuvika
  • Sundkort og heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Samgöngustyrkur

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Fanney Pálsdóttir, leikskólastjóri í síma 411-9770 eða í tölvupósti sigridur.fanney.palsdottir@reykjavik.is

Apply