Aðstoðarleikskóla- og verkefnastjóri í Hraunborg
Leikskólinn Hraunborg auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn að leiða áfram metnaðarfullt starf í Hraunborg ásamt stjórnendateymi leikskólans.
Hraunborg er þriggja deilda leikskóli sem er staðsettur í Hraunbergi 10 í Breiðholti í Reykjavík. Leikskólinn er staðsettur í jaðri Elliðaársdals og stutt er í skemmtilegar gönguleiðir og opin náttúrusvæði. Í leikskólanum er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi, málörvun, frjálsan leik, hreyfingu, útiveru, félagsfærni, sköpun og sjálfseflingu. Starfað er í anda sjálfstjórnunarkenninga um Jákvæðan aga og í anda heiltækar skólastefnu með fjölbreyttum starfsháttum og viðfangsefnum til að koma til móts við þarfir ólíkra einstaklinga.
Einkunnarorð Hraunborgar og leiðarljós í starfi eru: Leikur, læsi og lífsgleði.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni og lipurð í samskiptum, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi og vera tilbúin að leiða faglega forystu. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi og um er að ræða ótímabundið starf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vera faglegur leiðtogi, stuðningur og leiðsögn við deildarstjóra og aðra starfsmenn leikskólans.
- Vinna ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun auk skipulagningar kennslu- og uppeldsstarfsins.
- Staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
- Virkur þátttakandi í mótun stefnu leikskólans og áætlunargerð með leikskólastjóra.
- Sjá um samskipti og samvinna við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
- Sinna öðrum þeim verkefnum sem leikskólastjóri felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi
- Reynsla af stjórnun æskileg
- Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða
- Lipurð og hæfni í samskiptum
- Sjálfstæði og frumkvæði
- Reynsla af starfi í leikskólum nauðsynleg
- Góð tölvukunnátta æskileg
- Hreint sakavottorð
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Stjórnendur í leikskólum borgarinnar eru hluti af fjölmennu teymi fagfólks öflugu lærdómssamfélagi.
Fríðindi í starfi:
- 36 stunda vinnuvika
- Sundkort og heilsustyrkur
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Fanney Pálsdóttir, leikskólastjóri í síma 411-9770 eða í tölvupósti sigridur.fanney.palsdottir@reykjavik.is