Frístundaleiðbeinandi með umsjón (stuðningur) - Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla
Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla óskar eftir að ráða í störf frístundaleiðbeinenda með umsjón (stuðning) í 20-50% starfshlutföll eftir hádegið á virkum dögum.
Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili. Í Úlfabyggð er boðið upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk að skóladegi loknum. Þar starfa frístundaleiðbeinendur og frístundaráðgjafar sem eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaður endurspegli það margbreytilega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna samkvæmt samþykktri einstaklingsáætlun.
- Veita einstaklingsbundinn stuðning í samræmi við leiðbeiningar foreldra, forstöðumanns og ráðgjafaþroskaþjálfa.
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með fötluðum börnum og/eða börnum sem þurfa sértækan stuðning v. annarra ástæðna en fötlunar.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Tímabundin hlutastörf 20-50% eftir hádegið á virkum dögum.
Við leitum að fólki sem getur starfað næsta skólaár og hafið störf 24. ágúst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Erna Kjartansdóttir
Netfang: ragnheidur.erna.kjartansdottir@reykjavik.is