Til baka á starfasíðu

Frístundaleiðbeinandi með umsjón (stuðningur) - Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla

Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla óskar eftir að ráða í störf frístundaleiðbeinenda með umsjón (stuðning) í 20-50% starfshlutföll eftir hádegið á virkum dögum.

Hlutastarf Dalskóli - Frístundastuðningur 113
Sækja um

Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili. Í Úlfabyggð er boðið upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk að skóladegi loknum. Þar starfa frístundaleiðbeinendur og frístundaráðgjafar sem eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaður endurspegli það margbreytilega.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna samkvæmt samþykktri einstaklingsáætlun.
  • Veita einstaklingsbundinn stuðning í samræmi við leiðbeiningar foreldra, forstöðumanns og ráðgjafaþroskaþjálfa.
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.

Hæfniskröfur

Tímabundin hlutastörf 20-50% eftir hádegið á virkum dögum.

Við leitum að fólki sem getur starfað næsta skólaár og hafið störf 24. ágúst.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Erna Kjartansdóttir

Netfang: ragnheidur.erna.kjartansdottir@reykjavik.is

Sækja um