Back to the jobs page

Aðstoðarleikskólastjóri

Aðstoðarleikskólastjóri óskast til starfa í leikskólann Jöklaborg. Leikskólinn er 6 deilda skóli staðsettur efst í Seljahverfi við Jöklasel í Breiðholti. Börnin eru á aldrinum 1-6 ára gömul.

Fullt starf Leikskólinn Jöklaborg 109
Apply

Mikil gróska er í starfinu og spennandi tímar framundan. Við leggjum áherslu á læsi, sjálfsprottinn leik og skapandi starf. Hér er að byggjast upp starf í anda Reggio Emilia. Leiðarljósin okkar eru Gleði, virðing og sköpun; Að gleði sé ríkjandi í starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir hverjum einstaklingi. Að sköpun eigi sér stað í öllum námsþáttum skólans innandyra sem utan. 

Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimsíðu okkar: https://reykjavik.is/joklaborg Þar er hægt að kynna sér starfsáætlun síðasta skólaárs. Námskráin okkar er í vinnslu og verður tilbúin með haustinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfsins.
  • Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans.
  • Leiða innleiðingu starfs í anda Reggio Emilia
  • Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við
  • leikskólastjóra.
  • Vera faglegur leiðtogi.
  • Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
  • Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af starfi í leikskóla
  • Reynsla af stjórnun
  • Reynsla og þekking af því að starfa í umhverfi sem er ríkulegt af fjölbreyttum menningar- og tungumálabakgrunn æskileg
  • Reynsla og þekking að því að vinna eftir hugmyndafræði Reggio Emilia æskileg
  • Lipurð og hæfni í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
  • Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf
  • Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi

  • Líkamsræktarstyrkur árlega eftir 6 mánuði í starfi
  • Sundkort, sem veitir frían aðgang að öllum sundlaugum Reykjavíkurborgar
  • Menningarkort sem veitir ókeypis aðgang að söfnum borgarinnar
  • Samgöngusamningur noti starfsmaður vistvænan ferðamáta 3-4x í viku til vinnu
  • Frítt fæði sem boðið er uppá á matartímum skólans
  • Forgangur í leikskóla

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og

Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda í leikskólum.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ásta Kristín Svavarsdóttir, leikskólastjóri í síma 696 5096, í

tölvupósti asta.kristin.svavarsdottir@reykjavik.is. 

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Apply