Aðstoðarleikskólastjóri
Aðstoðarleikskólastjóri óskast til starfa í leikskólann Jöklaborg. Leikskólinn er 6 deilda skóli staðsettur efst í Seljahverfi við Jöklasel í Breiðholti. Börnin eru á aldrinum 1-6 ára gömul.
Mikil gróska er í starfinu og spennandi tímar framundan. Við leggjum áherslu á læsi, sjálfsprottinn leik og skapandi starf. Hér er að byggjast upp starf í anda Reggio Emilia. Leiðarljósin okkar eru Gleði, virðing og sköpun; Að gleði sé ríkjandi í starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir hverjum einstaklingi. Að sköpun eigi sér stað í öllum námsþáttum skólans innandyra sem utan.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimsíðu okkar: https://reykjavik.is/joklaborg Þar er hægt að kynna sér starfsáætlun síðasta skólaárs. Námskráin okkar er í vinnslu og verður tilbúin með haustinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfsins.
- Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans.
- Leiða innleiðingu starfs í anda Reggio Emilia
- Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við
- leikskólastjóra.
- Vera faglegur leiðtogi.
- Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
- Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af starfi í leikskóla
- Reynsla af stjórnun
- Reynsla og þekking af því að starfa í umhverfi sem er ríkulegt af fjölbreyttum menningar- og tungumálabakgrunn æskileg
- Reynsla og þekking að því að vinna eftir hugmyndafræði Reggio Emilia æskileg
- Lipurð og hæfni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur árlega eftir 6 mánuði í starfi
- Sundkort, sem veitir frían aðgang að öllum sundlaugum Reykjavíkurborgar
- Menningarkort sem veitir ókeypis aðgang að söfnum borgarinnar
- Samgöngusamningur noti starfsmaður vistvænan ferðamáta 3-4x í viku til vinnu
- Frítt fæði sem boðið er uppá á matartímum skólans
- Forgangur í leikskóla
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda í leikskólum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ásta Kristín Svavarsdóttir, leikskólastjóri í síma 696 5096, í
tölvupósti asta.kristin.svavarsdottir@reykjavik.is.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.