Stuðningsfulltrúi í Álfaland skammtímadvöl
Stuðningsfulltrúi óskast á skammtímadvöl Álfalandi 6
Skammtímadvölin í Álfalandi 6 óskar eftir harðduglegum, barngóðum og skemmtilegum stuðningfulltrúa til starfa í skemmtilegt og krefjandi starf fyrir fötluð börn á aldrinum 2-12 ára.
Hlutverk skammtímadvalar í Álfalandi er að veita forráðamönnum fatlaðra barna skammtímadvöl til að létta á heimilum og gefa fólki kost á að komast í frí. Skammtímadvöl er um leið afþreying og tilbreyting fyrir börnin sem þar dvelja hverju sinni.
Í Álfalandi er leitast við að skapa fallegt og heilbrigt andrúmsloft meðal starfsmanna, sem skilar sér í góðri þjónustu og umhyggju fyrir litlu dvalargestunum okkar. Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og allir fá aðlögunartíma.
Í Álfalandi er unnið á vöktum (dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir). Í boði er hlutastarf eða fullt starf eftir samkomulagi.
Verkefni og ábyrgð:
- Sinna eftirliti, uppeldi og umönnun fatlaðra barna á aldrinum 2-12 ára.
- Aðstoða þau með athafnir daglegs lífs.
- Styðja þau og hvetja til félagslegrar virkni og sjálfshjálpar
- Taka þátt í teymisvinnu
- Sinna flestum þeim verkefnum sem tilheyra rekstri heimilis s.s. húsverkum og þrifum.
Hæfniskröfur
- Umhyggjusemi og þolinmæði.
- Reynsla af starfi með fötluðum börnum nauðsynleg.
- Frumkvæði, stundvísi, sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð almenn menntun og - Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri og hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður: halla.magnusdottir@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags