Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi í Álfaland skammtímadvöl

Stuðningsfulltrúi óskast á skammtímadvöl Álfalandi 6

Hlutastarf Skammtímadvöl Álfalandi 108
Sækja um

Skammtímadvölin í Álfalandi 6 óskar eftir harðduglegum, barngóðum og skemmtilegum stuðningfulltrúa til starfa í skemmtilegt og krefjandi starf fyrir fötluð börn á aldrinum 2-12 ára. 

Hlutverk skammtímadvalar í Álfalandi er að veita forráðamönnum fatlaðra barna skammtímadvöl til að létta á heimilum og gefa fólki kost á að komast í frí. Skammtímadvöl er um leið afþreying og tilbreyting fyrir börnin sem þar dvelja hverju sinni.

Í Álfalandi er leitast við að skapa fallegt og heilbrigt andrúmsloft meðal starfsmanna, sem skilar sér í góðri þjónustu og umhyggju fyrir litlu dvalargestunum okkar. Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og allir fá aðlögunartíma. 

Í Álfalandi er unnið á vöktum (dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir). Í boði er hlutastarf eða fullt starf eftir samkomulagi.

Verkefni og ábyrgð:

  • Sinna eftirliti, uppeldi og umönnun fatlaðra barna á aldrinum 2-12 ára.
  • Aðstoða þau með athafnir daglegs lífs.
  • Styðja þau og hvetja til félagslegrar virkni og sjálfshjálpar
  • Taka þátt í teymisvinnu
  • Sinna flestum þeim verkefnum sem tilheyra rekstri heimilis s.s. húsverkum og þrifum.

Hæfniskröfur

  • Umhyggjusemi og þolinmæði.
  • Reynsla af starfi með fötluðum börnum nauðsynleg.
  • Frumkvæði, stundvísi, sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð almenn menntun og - Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri og hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður: halla.magnusdottir@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags

Sækja um