Back to the jobs page

Leikskólakennari og eða/leiðbeinandi - Kvistaborg

Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra háskólamenntun óskast til starfa við leikskólann Kvistaborg, Haðalandi 26, 108 Rvk. Við erum í Fossvogsdalnum með aðgengi að fallegustu náttúrperlum Reykjavíkur með góðar göngu- og hjólaleiðir allt um kring.  

Fullt starf Leikskólinn Kvistaborg 108
Apply

Kvistaborg er fjögurra deilda leikskóli, staðsettur neðst í Fossvogsdalnum. Einkunnarorð Kvistaborgar eru: hugrekki, hlýja, hlustun og hvatning. 

Við leggjum áherslu á endurmenntun starfsmanna. Meðal verkefna sem við vinnum reglulega að eru Vináttuverkefni Barnaheilla, Lubbi, Leikur að læra, útinám, hreyfing og Biophilia. Útivera leikur stóran þátt í okkar daglega starfi.

Við erum mjög áhugasöm um tónlist og ef umsækjandi spilar á hljóðfæri þá fellur það vel að okkar starfi. 

Við erum heilsueflandi leikskóli, og erum svo heppin að hafa matráð og eldhús sem vinnur allt frá grunni.

Hafir þú áhuga á að vinna með skemmtilegu fólki sem vinnur vel saman í gefandi starfsumhverfi, líflegum börnum, þá er Kvistaborg staður fyrir þig.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða önnur háskólamenntun skilyrði.
  • Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli -Stig B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

  • 36 st. vinnuvika miðað við 100% starf að meðaltali 
  • Sund- og menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Hádegismatur

Nánari upplýsingar um starfið

100% starfshlutfall, starfið er laust 11. ágúst 2026, eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Gunnarsdóttir gudrun.gunnarsdottir@reykjavik.is sími: 863-1545

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Apply