Enskukennari 7 - 10.bekk - Rimaskóli
Rimaskóli leitar eftir enskukennara í kennslu hjá nemendum í 7. - 10.bekk. Um er að ræða 100% starf og tímabundna ráðningu frá 1. ágúst 2026 með möguleika á framlengingu.
Einkunnarorð Rimaskóla eru regla, metnaður og sköpun. Skák er höfð í hávegum en auk þess eru leiðarljósin okkar leiðsagnarnám og uppeldi til ábyrgðar
Um er að ræða enskukennslu nemenda í 7. - 10.bekk. Kennari vinnur í teymi og kemur að innleiðingu og útfærslu aðalnámskrár grunnskóla fyrir skólanámskrá Rimaskóla.
Verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í innleiðingu nýrrar aðalnámskrár
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara
- Menntun og hæfni til kennslu í ensku
- Hæfni í teymiskennslu
- Þekking á upplýsingatækni
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í síma 411-7720 eða í netfanginu thoranna.rosa.olafsdottir@reykjavik.is.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.