Til baka á starfasíðu

Enskukennari 7 - 10.bekk - Rimaskóli

Rimaskóli leitar eftir enskukennara í kennslu hjá nemendum í 7. - 10.bekk. Um er að ræða 100% starf og tímabundna ráðningu frá 1. ágúst 2026 með möguleika á framlengingu.

Einkunnarorð Rimaskóla eru regla, metnaður og sköpun. Skák er höfð í hávegum en auk þess eru leiðarljósin okkar leiðsagnarnám og uppeldi til ábyrgðar

Fullt starf Rimaskóli - Almenn námsráðgjöf 112
Apply

Um er að ræða enskukennslu nemenda í 7. - 10.bekk. Kennari vinnur í teymi og kemur að innleiðingu og útfærslu aðalnámskrár grunnskóla fyrir skólanámskrá Rimaskóla.

Verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í innleiðingu nýrrar aðalnámskrár

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara
  • Menntun og hæfni til kennslu í ensku
  • Hæfni í teymiskennslu
  • Þekking á upplýsingatækni
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í síma 411-7720 eða í netfanginu thoranna.rosa.olafsdottir@reykjavik.is.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Apply