Þroskaþjálfi í Hagaskóla
Hagaskóli leitar að þroskaþjálfa í fullt starf fyrir skólaárið 2026-2027.
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. til 10. bekk. Spennandi starf í skóla þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.
Þroskaþjálfi – Hagaskóli
Laus er til umsóknar staða þroskaþjálfa við Hagaskóla fyrir skólaárið 2026-2027. Um er að ræða 100% stöðu.
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.
Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðlaga nám og námsumhverfi fyrir nemendur með þroskafrávik.
- Stuðla að velferð nemenda og veita þeim aðgang að fjölbreyttu námi þar sem unnið er út frá styrkleikum hvers og eins.
- Halda utan um mál einstaka nemenda og sitja í þverfaglegu teymi.
- Annast kennslu og þjálfun nemenda.
- Halda utan um gerð einstaklingsáætlana.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og öðru samstarfsfólki.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi.
- Farsæl reynsla af vinnu með einstaklingum með fjölþættan vanda.
- Góð samskiptafærni og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Inga Tómasdóttir, deildarstjóri mannauðs og rekstrar í Hagaskóla, netfang: gudrun.inga.tomasdottir@reykjavik.is