Til baka á starfasíðu

Þroskaþjálfi í Hagaskóla

Hagaskóli leitar að þroskaþjálfa í fullt starf fyrir skólaárið 2026-2027. 

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. til 10. bekk. Spennandi starf í skóla þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.

Fullt starf Hagaskóli - Sérkennsla þroskaþj. 107
Apply

Þroskaþjálfi – Hagaskóli

Laus er til umsóknar staða þroskaþjálfa við Hagaskóla fyrir skólaárið 2026-2027. Um er að ræða 100% stöðu.

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.

Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðlaga nám og námsumhverfi fyrir nemendur með þroskafrávik.
  • Stuðla að velferð nemenda og veita þeim aðgang að fjölbreyttu námi þar sem unnið er út frá styrkleikum hvers og eins.
  • Halda utan um mál einstaka nemenda og sitja í þverfaglegu teymi.
  • Annast kennslu og þjálfun nemenda.
  • Halda utan um gerð einstaklingsáætlana.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og öðru samstarfsfólki.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi.
  • Farsæl reynsla af vinnu með einstaklingum með fjölþættan vanda.
  • Góð samskiptafærni og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Inga Tómasdóttir, deildarstjóri mannauðs og rekstrar í Hagaskóla, netfang: gudrun.inga.tomasdottir@reykjavik.is

Apply