Back to the jobs page

Sérkennari, kennari eða þroskaþjálfi í Klettaskóla, Suðurhlíð 9

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og eru einkunnarorð skólans "Menntun fyrir lífið". Við leitum að öflugum sérkennurum/kennurum/þroskaþjálfum til að bætast í fjölbreyttan og lifandi starfsmannahóp skólans.

Fullt starf Klettaskóli almennt 105
Apply

Við leitum að öflugum sérkennara, kennara eða þroskaþjálfa í Klettaskóla frá og með haustinu 2026.

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Starfsmenn vinna í teymum og þurfa að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við krefjandi en gefandi verkefni. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".

Nám og kennsla nemenda er einstaklingsmiðuð þar sem byggt er á forsendum og styrkleikum hvers og eins nemanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfa í þverfaglegu teymi sem sér um skipulag og framkvæmd kennslu í bekknum
  • Vinna einstaklingsnámskrár og námsmat
  • Samstarf við foreldra og aðra fagaðila
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsleyfi til að starfa sem grunnskólakennari/þroskaþjálfi, starfsleyfi fylgi umsókn
  • Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Lausnarmiðuð hugsun
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta (C1)

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Arnheiður Helgadóttir skólastjóri Klettaskóla í síma 411-7950. Einnig er hægt að senda póst á netfangið arnheidur.helgadottir@reykjavik.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026

Apply