Back to the jobs page

Skemmtilegt sumarstarf á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða

Skemmtilegt sumarstarf á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í Laugardalnum. Sérstaklega tilvalið fyrir skólafólk sem er til dæmis að læra sálfræði eða félagsfræði, en þó tökum við auðvitað vel á móti öllum. Unnið er á vöktum og yfirleitt er hægt að semja um starfshlutföll. 

Fullt starf Íbúðakjarni Austurbrún 6 105
Apply

Tveir íbúðakjarnar í Laugardalnum leita eftir sumarstarfsfólki.

Unnið er á blönduðum vöktum: dag- kvöld- helgar- og næturvaktir.

Annar kjarninn er með sólarhringsþjónustu og þjónustar alls fimm einstaklinga, hinn er opinn frá 8-22 og þjónustar tíu einstaklinga. Báðir eru með það að markmiði að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt. Íbúum er veittur stuðningur, ráðgjöf og valdefling til að bæta lífsgæði sín.

Unnið er eftir þjónandi leiðsögn, batahugmyndafræði og hugmyndafræði um sjálfstætt líf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Félagslegur stuðningur og hvatning við íbúa í þeirra daglega lífi.

Aðstoð við íbúa í almennum heimilisstörfum.

Sinna daglegum verkefnum skv. verklagi og framfylgja þjónustuáætlunum.

Hæfniskröfur

Góð almenn menntun

Umburðarlyndi, frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð

Íslenskukunnátta B2 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri

Nánari upplýsingar

Hafið samband við Elínu Ósk á netfangið elin.osk.asgeirsdottir@reykjavik.is

Apply