Deildarstjóri - Laufskálar
Deildastjóri óskast til starfa í leikskólann Laufskála
Deildastjóri óskast til starfa í leikskólanum Laufskálum, Laufrima 9, 112 Reykjavík.
Laufskálar er fjögurra deilda leiklistarleikskóli þar sem áhersla er lögð á leiklist og leikgleði. Markmiðið er ekki alltaf að setja upp stóra sýningu - en mikið er það nú gaman!
Í Laufskálum er unnið að markmiðum okkar í leiklist, framkomu, samskipti, vináttu, virk hlustun og margt fleira spennandi. Samvinna starfsfólks er lykillinn að góðum degi. Við þurfum fólk sem er gott í samskiptum, vill vinna inni jafnt sem úti og hefur gott vald á íslensku.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
- Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Fríðindi í starfi
- Menningakort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum skilyrði
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Færni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
- Íslenska B1 skv. samevrópska tungumálarammanum
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Upplýsingar um starfið gefur Guðrún Rut Bjartmarsdóttir leikskólastjóri í síma 411 3880/663 5322 gudrun.rut.bjartmarsdottir@reykjavik.is