Back to the jobs page

Deildarstjóri stoðþjónustu- Foldaskóli

Foldaskóli auglýsir lausa stöðu deildarstjóra stoðþjónustu frá 1. ágúst 2026.

Við leitum að faglegum og metnaðarfullum leiðtoga sem er sveigjanlegur í starfi, býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni og á auðvelt með samstarf.

Fullt starf Foldaskóli 112
Apply

Foldaskóli er heildstæður grunnskóli þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag og fjölbreytta kennsluhætti. Nemendur við skólann eru tæplega 500 en ásamt því að vera hverfisskóli nemenda í 1.-10. bekk í Foldahverfi er hann safnskóli á unglingastigi fyrir Hamra- og Húsahverfi. Við skólann er starfrækt Foldaver, sérdeild fyrir einhverfa.

Leiðsagnarnám og skapandi lærdómssamfélag einkenna skólann ásamt sterkri umhverfisvitund og heilsueflingu en skólinn tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og fylgir grænum skrefum Reykjavíkurborgar. Umhverfi skólans býður upp á mikla möguleika þar sem hann er í nálægt við Grafarvoginn sem státar af fjölbreyttri náttúru og iðandi fuglalífi.

Einkunnarorð skólans eru: siðprýði – menntun – sálarheill

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins Betri borg fyrir börn og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Faglegur verkstjóri stoðþjónustu, ásamt því að sinna starfsmannahaldi, styðja við starfsfólk stoðþjónustunnar og veita faglega ráðgjöf.
  • Stuðlar að jákvæðri náms- og skólamenningu og vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
  • Hefur yfirsýn yfir þjónustu við nemendur með sérþarfir, heldur utan um skimanir og greiningar nemenda, aflar og miðlar upplýsingum innan sem utan skóla vegna nemenda sem glíma við áskoranir og vinnur að einstaklingsáætlunum í samstarfi við kennara.
  • Boðar og stýrir skilafundum og er tengiliður skólans við sérfræðinga og stofnanir sem tengjast stoðþjónustu skólans.
  • Stýrir nemendaverndarráði og situr í lausnateymi skólans og er í samskiptum við fulltrúa þeirra.
  • Er tengiliður við farsældarþjónustu samkvæmt farsældarlögum.
  • Sinnir öðrum störfum og verkefnum sem honum eru falin af skólastjórnendum og falla undir verksvið deildarstjóra stoðþjónustu.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sérkennslu.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði sérkennslu eða stjórnunar æskileg.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði.
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
  • Góð almenn tölvukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.

Starfshlutfall 100%

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía María Gunnarsdóttir í tölvupósti Olafia.maria.gunnarsdottir@reykjavik.is

 

Apply