Back to the jobs page

Sumarstarf við félagsstarf í Samfélaghúsinu á Vitatorgi

Samfélagshúsið Vitatorgi óskar eftir starfsmanni í sumarstarf við fjölbreytt og skemmtilegt starf 

Fullt starf Reykjavíkurborg
Apply

Í Samfélagshúsinu á Vitatorgi fer fram fjölbreytt félagsstarf og viðburðir fyrir fólk á öllum aldri. Markmiðið er að efla félagslega þátttöku og skapa tækifæri til virkni og samveru. Í húsinu eru einnig þjónustuíbúðir. Áhersla er á að dagskrá og starfsemi höfði sérstaklega til eldri borgara, en jafnframt til fólks óháð aldri, kyni og uppruna.

Um er að ræða 100% starfshlutfall. Vinnutími er frá kl. 08:00 til 16:00 virka daga á tímabilinu júní-ágúst.

Verkefni og ábyrgð

  • Starfar með virkniteymi
  • Skipuleggur og heldur úti dagskrá samfélagshússins
  • Skipuleggur viðburði og tekur þátt í framkvæmd þeirra 
  • Hvetur fólk til félagslegrar virkni
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur viðkomandi

Hæfniskröfur

  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Vilji til að gefa af sér og eiga góð samskipti við fjölbreyttan hóp fólks
  • Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og ábyrgð í starfi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar 
  • Íslenskukunnátta sem samsvarar B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis

Nánari upplýsingar um starfið veitir Drífa Baldursdóttir verkefnastjóri, í tölvupósti drifa.baldursdottir@reykjavik.is 

Apply