Back to the jobs page

Umsjónarkennari á miðstigi í Seljaskóla

Laus er til umsóknar 100% staða umsjónarkennara á miðstigi í Seljaskóla frá og með hausti 2026. 

Fullt starf Seljaskóli 109
Apply

Umsjónarkennari á miðstigi í Seljaskóla

Laus er til umsóknar 100% staða umsjónarkennara á miðstigi í Seljaskóla frá og með hausti 2026.

Seljaskóli við Kleifarsel er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk í efri hluta Seljahverfis. Þar sækja rúmlega 670 nemendur skóla og við hann starfa um 100 starfsmenn. Starfið byggir á grunngildum skólans, samvinnu- ábyrgð- trausti – og tillitssemi og er skólastarf sem stuðlar að vellíðan nemenda og starfsmanna (SÁTT). 

Sérstök áhersla er lögð á félagsfærni og sjálfseflingu í anda Menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast. 

Allt starf Seljaskóla byggir á teymisvinnu og vinnur kennarateymi saman að kennslu árgangs, þróun skólastarfs og samvinnu við foreldra. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla í samráði við skólastjórnendur og viðkomandi teymi. 
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. 
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra. 
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. 
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Hæfni og áhugi á að vinna með öðrum.
  • Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað, a.m.k. C1 samkvæmt Samevrópska matsrammanum.
  • Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi. 
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum. 
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi

  • Menningarkort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Starfshlutfall 100%

Umsóknarfrestur 24. apríl 2026

Ráðningarform Ótímabundin ráðning.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Héðinsdóttir skólastjóri í síma 411-7500 eða með því að senda fyrirspurn á johanna.hedinsdottir@reykjavik.is

Apply