Deildarstjóri stoðþjónustu í Seljaskóla
Seljaskóli auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu deildarstjóra stoðþjónustu frá 1. ágúst 2026.
Við leitum að faglegum og metnaðarfullum leiðtoga sem er sveigjanlegur í starfi, býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni og á auðvelt með samstarf.
Seljaskóli við Kleifarsel er grunnskóli fyrir nemendur í 1.–10. bekk í efri hluta Seljahverfis. Í skólanum eru 670 nemendur og um 100 starfsmenn.
Starfið byggir á grunngildum skólans – samvinnu, ábyrgð, trausti og tillitssemi (SÁTT) – með áherslu á vellíðan nemenda og starfsfólks.
Í Seljaskóla er teymisvinna í forgrunni og vinna kennarateymi saman að kennslu, þróun skólastarfs og samstarfi við foreldra.
Deildarstjóri stoðþjónustu er hluti af stjórnunarteymi skólans og gegnir lykilhlutverki í skipulagi, þróun og framkvæmd stoðþjónustu. Leitað er að einstaklingi sem sýnir frumkvæði og hefur brennandi áhuga á velferð og farsæld nemenda.
Helstu verkefni:
- Faglegur verkstjóri stoðþjónustu, ásamt því að sinna starfsmannahaldi, styðja við starfsfólk stoðþjónustunnar og veita faglega ráðgjöf.
- Stuðlar að jákvæðri náms- og skólamenningu og vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
- Hefur yfirsýn yfir þjónustu við nemendur með sérþarfir, heldur utan um skimanir og greiningar nemenda, aflar og miðlar upplýsingum innan sem utan skóla vegna nemenda sem glíma við áskoranir og vinnur að einstaklingsáætlunum í samstarfi við kennara.
- Boðar og stýrir skilafundum og er tengiliður skólans við sérfræðinga og stofnanir sem tengjast stoðþjónustu skólans.
- Stýrir nemendaverndarráði og situr í lausnateymi skólans og er í samskiptum við fulltrúa þeirra.
- Er tengiliður við farsældarþjónustu samkvæmt farsældarlögum.
- Sinnir öðrum störfum og verkefnum sem honum eru falin af skólastjórnendum og falla undir verksvið deildarstjóra stoðþjónustu.
Hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Reynsla af sérkennslu æskileg.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði sérkennslu eða stjórnunar æskileg.
- Stjórnunarreynsla æskileg.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
- Faglegur metnaður og frumkvæði.
- Skipulagshæfin og nákvæmni í vinnubrögðum.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Íslenskukunnátta samkvæmt C1 á evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi:
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Starfshlutfall 100%
Umsóknarfrestur 24. apríl 2026
Ráðningarform Ótímabundin ráðning.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Héðinsdóttir skólastjóri í síma 411-7500 eða með því að senda fyrirspurn á johanna.hedinsdottir@reykjavik.is