Dalskóli - deildarstjóri í 1.-6.bekk
Grunnskólahluti Dalskóla auglýsir eftir deildarstjóra í 1.-6.bekk.
Athugið að staðan er til eins árs.
Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili í fallegri byggingu í Úlfarsárdal.
Spennandi starf í nýlegum skóla þar sem lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf.
Í Dalskóla eru um 500 börn í 1. -10. bekk.
Skólinn er staðsettur í Úlfarsárdal og hóf starfsemi haustið 2010.
Í Dalskóla er lögð áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga og er Dalskóli þróunarskóli í leiðsagnarnámi.
Deildarstjóri hefur forystu í faglegu starfi á yngsta - og miðstigi og fylgist með því að unnið sé í samræmi við skólanámskrá og innri markmið skólastarfsins á hverjum tíma. Deildarstjóri situr vikulega samráðsfundi með öðrum stjórnendum.
Skólastjóri getur falið deildarstjóra umsjón annarra tímabundinna verkefna í skólastarfinu svo og staðgengilshlutverk í fjarveru annarra skólastjórnenda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast deildarstjórn á yngsta og miðstigi skólans.
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
- Starfar í stjórnendateymi skólans.
- Stýra og fylgja eftir lestrarstefnu skólans með áherslu á PALS
- Stuðla að framþróun og nýbreytni í kennsluháttum og kennsluaðsferðum s.s. leiðsagnarnámi, teymiskennslu, námsmati og nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.
- Utanumhald á samstarf við leikskólahluta Dalskóla og frístundaheimilið Úlfabyggð.
Hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Stjórnunarreynsla í grunnskóla æskileg.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Þekking og reynsla af PALS, leiðsagnarnámi, teymiskennslu og jákvæðum aga.
- Mjög góð hæfni í íslensku bæði í töluðu og rituðu máli
- Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í skólastarfi.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Menningarkort- bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags skólastjórnenda.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Auður Valdimarsdóttir, skólastjóri í netfanginu: audur.valdimarsdottir@rvkskolar.is