Skemmtilegt sumarstarf í íbúðakjarna í Norðlingaholti (Copied)
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir áhugasömu sumar starfsfólki á íbúðakjarna í Norðlingaholti þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir áhugasömu sumar starfsfólki á íbúðarkjarna í Norðlingaholti þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Heimilið opnaði í febrúar árið 2021 og búa þar 12 einstaklinga með fötlun. Um vaktavinnu er að ræða og starfshlutfall getur verið 70% - 100% eftir samkomulagi. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar með það að markmiði að efla sjálfstætt líf einstaklinga og skapa nýjar upplifanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
- Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
- Stuðlar að góðum samskiptum við aðstandendur íbúa.
- Aðstoð við almenn störf á heimili íbúa, svo sem við þrif og matseld.
Hæfniskröfur:
- Góð almenn menntun
- Íslenskukunnátta
- Framtakssemi, áreiðanleiki, heiðarleiki og jákvæðni í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
- Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi/verkefni.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar veitir Birgir Freyr Birgisson, forstöðumaður, s. 8214600 eða birgir.freyr.birgisson@reykjavik.is