Back to the jobs page

Skemmtilegt sumarstarf í íbúðakjarna

Íbúðarkjarninn Kambavað auglýsir eftir flottu sumarstarfsfólki inn í skemmtilegan starfsmannahóp á heimili þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Um nokkrar stöður er að ræða í 70-90% stöðugildum á blandaðar vaktir (dag, kvöld og helgar).

Fullt starf Reykjavíkurborg
Apply

Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi þjónustu. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Hvetur og styður íbúa í daglegu lífi.
  • Stuðlar að góðum samskiptum við aðstandendur íbúa.
  • Aðstoð við almenn störf á heimili íbúa, svo sem við þrif og matseld.
  • Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn með það að markmiði að efla sjálfstætt líf einstaklinga.

Hæfniskröfur:

  • Góð almenn menntun
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg en ekki skilyrði.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum https://www.coe.int/en/web/portfolio/self-assessment-grid
  • Framtakssemi, áreiðanleiki, heiðarleiki og jákvæðni í starfi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
  • Bílpróf er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.

Fríðindi í starfi:

• Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu

• Heilsuræktarstyrkur

• Frítt í sund með ÍTR kortinu

Nánari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis

Nánari upplýsingar um starfið veitir Erla Margrét Sveinsdóttir, forstöðumaður, erla.margret.sveinsdottir@reykjavik.is

Apply