Sérkennslustjóri Langholt
Við í Langholti óskum eftir metnaðarfullum sérkennslustjóra í stjórnendateymið okkar.
Langholt er átta deilda leikskóli við Sólheima í Reykjavík og er starfræktur í þremur byggingum.
Gróið umhverfi, nálægð við Laugardalinn og skemmtilegur húsakostur býður upp á spennandi leiðir til þess að mennta og hlúa að fjölbreyttum hópi barna.
Leikskólinn er sterkur hluti af mannlífi í hverfinu enda virðing, gleði og vinátta höfð að leiðarljósi í starfinu. Útinám og læsi eru máttarstoðir í daglegu starfi.
Í Langholti leggjum við áherslu á að draumar allra barna geti ræst og að öll börn geti notið sín.
Við skólann starfar metnaðarfullur starfsmannahópur með fjölbreytta menntun og reynslu. Saman vinnum við að því markmiði að öllum börnum líði vel og þau nái að vaxa, dafna og njóta sín. Við leggjum áherslu á góð og jákvæð samskipti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
- Yfirumsjón með gerð verkefna og gerð einstaklingsnámskráa.
- Yfirumsjón með samskiptum við foreldra, ráðgjafa og annarra sem koma að sérkennslu.
- Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við foreldra og starfsmenn.
- Að veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
- Starfa sem tengiliður farsældar í leikskólanum.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun, leikskólasérkennaramenntun, Þroskaþjálfamenntun, Bs. í sálfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af sérkennslu.
- Reynsla úr leikskóla.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góða tölvukunnátta.
- Hreint sakavottorð
- Íslenskukunnátta á stigi B1 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- sundkort
- menningarkort
- Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mán. í starfi
- afsláttur af dvalargjaldi
- samgöngusamningur
- frír hádegismatur
Laun er samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Forsenda ráðningar er að aflað sé upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins að fengnu upplýstu samþykki umsækjanda í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starf.
Frekar upplýsingar um starfið veitir Sigrún Bragadóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfanginu sigrun.bragadottir@reykjavik.is