Sumarstörf í neyðarskýlum borgarinnar
Vesturmiðstöð óskar eftir sumarstarfsfólki til starfa í neyðarskýlum Reykjavikurborgar. Unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum.
Vesturmiðstöð leitar að sumarstarfsfólki til starfa neyðarskýlum Reykjavíkurborgar. Unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Hlutverk og meginmarkmið neyðarskýlanna er að veita heimilislausum karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir tímabundið skjól og viðeigandi aðstoð. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum dvalargesta á heildrænan og einstaklingsmiðaðan hátt. Hugmyndafræði skaðaminnkunar skal vera höfð að leiðarljósi í þjónustu við gesti neyðarskýla Reykjavíkurborgar.
Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka gesta neyðarskýlanna
- Veita gestum félagslegan stuðning
- Umönnun og eftirlit
- Framleiðsla matar og þrif
- Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við notendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun
- Reynsla og/eða áhugi á vinnu með karlmönnum með fjölþættan vanda
- Þekking og/eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði
- Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta B-2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Nánari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingi Þór Eyjólfsson, ingi.thor.eyjolfsson@reykjavik.is