Skólaliði - Réttarholtsskóli
Réttarholtsskóli auglýsir eftir skólaliða í 50% starfshlutfall. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Réttarholtsskóli auglýsir eftir skólaliða í 50% starfshlutfall. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Í skólanum eru um 460 nemendur og starfsmenn um 60. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan. Áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi, fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er í grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Menntunar- og hæfniskröfur
Afburða samskiptahæfni og skipulagshæfileikar
Sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnu
Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum kostur
Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Starf skólaliða felst meðal annars í aðstoð við nemendur og starfsfólk skólans, þrif og aðstoð í mötuneyti.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í s: 411-6900 og í tölvupósti