Back to the jobs page

Réttarholtsskóli – Kennari

Við í Réttarholtsskóla leitum að kennara í íslensku sem annað tungumál frá og með 1. ágúst 2026.

Fullt starf Réttarholtsskóli 103
Apply

Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Í skólanum eru um 460 nemendur og starfsmenn rúmlega 60. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing- virkni og vellíðan. Áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi, fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er í grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla í íslensku sem annað tungumál í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.

Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.

Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið kennari.

Reynsla í kennslu íslensku sem annað tungumál æskileg.

Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.

Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.

Faglegur metnaður.

Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í s: 411-6900 og í tölvupósti margret.sigfusdottir@reykjavik.is

Apply