Back to the jobs page

Réttarholtsskóli – Yfirmaður mötuneytis

Laus er 100% staða yfirmanns mötuneytis Réttarholtsskóla. 

Fullt starf Réttarholtsskóli 103
Apply

Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Í skólanum eru um 460 nemendur og starfsmenn rúmlega 60. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing- virkni og vellíðan. Áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi, fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er í grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Annast matseld fyrir nemendur og starfsfólk

Umsjón með gerð matseðla

Innkaup og samskipti við birgja

Frágangur í mötuneyti

Umsjón með mötuneyti í samstarfi við skólastjórnendur

Hæfniskröfur

Menntun og reynsla í matreiðslu

Þekking á næringarfræði, fæðuofnæmi og rekstri mötuneyta

Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

Sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í s: 411-6900 og í tölvupósti margret.sigfusdottir@reykjavik.is

Apply