Back to the jobs page

Stoðkennari - Engjaskóli

Stoðkennsla-Engjaskóli

Leitað er að metnaðarfullum stoðkennara sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og stoðkennslu. Þetta er tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2026.

Fullt starf Engjaskóli - Sérkennsla kennari 112
Apply

Engjaskóli er grunnskóli í norðanverðum Grafarvogi og er fyrir nemendur í 1. -7. bekk. Einkunnarorð skólans eru SKÖPUN-SEIGLA-SAMVINNA

Hlutverk Engjaskóla er að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi nám, stuðla að alhliða þroska allra nemenda, að mennta ábyrga og hæfa þjóðfélagsþegna með það að markmiði að þeir verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar sem geta tekið virkan þátt í þróun samfélagsins og stundað frekara nám.

Áhersla er á leiðsagnarnám og teymisvinnu starfsfólks. Skólinn leggur einnig áherslu á heilsueflingu, umhverfismennt og nýsköpun.

Helstu verkefni

  • Vinna með börnum sem þurfa stuðning.
  • Leiðsögn og stuðningur til starfmanna.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna að einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
  • Sinna verkefnum sem tengjast verkefnum innan skólans sem yfirmaður felur honum.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Sérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun.
  • Menntun og hæfni til almennrar kennslu með fjölbreyttar þarfir nemendahóps.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort- bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Starfshlutfall 100%

Ráðningarform: tímabundin ráðning

Laun eru samkvæmt samningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ

Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Álfheiður Einarsdóttir skólastjóri í síma 411 7750 eða með því að senda fyrirspurn á alfheidur.einarsdottir@reykjavik.is

Apply