Back to the jobs page

Umsjónarkennari á yngsta stig - Engjaskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Engjaskóli 

Engjaskóli leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúin að taka þátt í skólaþróun. Þetta er ótímabundin ráðning frá 1. ágúst 2026.

Fullt starf Engjaskóli - Almennt 112
Apply

Engjaskóli er grunnskóli í norðanverðum Grafarvogi og er fyrir nemendur í 1. -7. bekk. Einkunnarorð skólans eru SKÖPUN-SEIGLA-SAMVINNA.

Hlutverk Engjaskóla er að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi nám, stuðla að alhliða þroska allra nemenda, að mennta ábyrga og hæfa þjóðfélagsþegna með það að markmiði að þeir verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar sem geta tekið virkan þátt í þróun samfélagsins og stundað frekara nám.

Áhersla er á leiðsagnarnám og teymisvinnu starfsfólks. Skólinn leggur einnig áherslu á heilsueflingu, umhverfismennt og nýsköpun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast umsjónarkennslu í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar og hæfniskröfur kennara

  • Leyfisbréf kennara.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á skólaþróun.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Kennslureynsla æskileg.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað a.m.k. C1 í evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi í starfi:

  • menningar- og bókasafnskort
  • samgöngustyrkur
  • sundkort
  • heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Starfshlutfall 100%

Ráðningarform: ótímabundin ráðning

Laun eru samkvæmt samningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/FG

Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Álfheiður Einarsdóttir skólastjóri í síma 411 7750 eða með því að senda fyrirspurn á alfheidur.einarsdottir@reykjavik.is

Apply