Back to the jobs page

Ráðgjafi í deild Barna og fjölskyldna - Suðurmiðstöð

Laus er til umsóknar staða ráðgjafa í deild barna og fjölskyldna í Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar. Um er að ræða tímabundna stöðu til 30. desember 2027 og er staðan laus frá 10.ágúst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða 80-100% stöðu. 

Fullt starf Börn og barnafjölskyldur - Suðurmiðstöð 109
Apply

Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og barnafjölskyldur. Ráðgjafi mun sinna félagslegri ráðgjöf vegna barna og fjölskyldna, þverfaglegu samstarfi innan Suðurmiðstöðvar og við samstarfsaðila, s.s. leikskóla, grunnskóla og frístundastarfsemi og þátttöku í sameiginlegu verkefni velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, Betri borg fyrir börn. Markmið verkefnisins er að efla þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra og þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð:

• Félagsleg ráðgjöf og stuðningur við börn, fjölskyldur og starfsfólk skóla.

• Ábyrgð og vinnsla einstaklings- og fjölskyldumála.

• Málstjórn samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

• Gerð grunnmats vegna stuðningsþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra.

• Umsjón og yfirsýn einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.

• Ráðgjöf, fræðsla og upplýsingagjöf til notenda, samstarfsaðila og veitenda þjónustu við börn.

• Þverfaglegt starf innan Suðurmiðstöðvar, ekki síst í teymi Betri borgar fyrir börn.

• Samvinna við samstarfsaðila.

Menntunar- og hæfnikröfur:

• Starfsréttindi til að starfa sem félagsráðgjafi en einstaklingar með aðra háskólamenntun á mastersstigi sem nýtist í starfi koma einnig til greina.

• Þekking og reynsla af starfi félags- og/eða fjölskylduráðgjafar.

• Þekking og reynsla af starfi á sviði velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar eða öðru sveitarfélagi er kostur. Þekking eða reynsla af því að starfa með fólki af erlendum uppruna er kostur.

• Áhugi á þverfaglegu samstarfi.

• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt hugarfar og vilji til að taka þátt í þróunarstarfi.

• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

• Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.

• Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Suðurmiðstöð býður upp á:

· 36 stunda vinnuviku

· Fjölskylduvænan vinnustað.

· Góðan starfsanda og má geta þess að barna og fjölskyldudeild og Suðurmiðstöð í heild kom afar vel út í stofnun ársins 2025 hvað varðar starfsanda og fleiri þætti.

· Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki.

· Sveigjanlegan vinnutíma og styttingu vinnuvikunnar.

· Handleiðsluteymi ráðgjafa.

· ÍTR kort eftir mánuð í starfi sem veitir meðal annars ókeypis aðgang í Sundlaugar Reykjavíkur.

· Afslátt á menningarkorti Reykjavíkurborgar

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Ásgeirsdóttir, deildarstjóri í síma 411 1300 eða tölvupósti gudrun.asgeirsdottir@reykjavik.is

Apply