Back to the jobs page

Sjúkraliði/sjúkraliðanemi/hjúkrunarnemi sumarafleysing

Hefurðu áhuga á sumarstarfi þar sem þú færð fjölbreytta reynslu og tilheyrir þéttum starfsmannahópi? Heimahjúkrun á Sléttuvegi óskar eftir sjúkraliðum og sjúkraliða- eða hjúkrunarnemum í afleysingu í sumar. Um er að ræða vaktavinnu og getur starfshlutfall verið samkvæmt samkomulagi. 

Fullt starf Heimahjúkrun Sléttuvegi 103
Apply

Hefurðu áhuga á gefandi starfi í sumar og tilheyra vinnustað þar sem ríkir góður andi?

Heimaþjónusta Sléttuvegi auglýsir eftir sjúkraliðum og sjúkraliða- eða hjúkrunarnemum í sumarafleysingu við samþætta þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings sumarið 2026.

Um er að ræða líflegan vinnustað þar sem veitt er staðbundin þjónusta á Sléttuvegi. Starfið býður upp á fjölbreyttar áskoranir og miðar að því að veita hjúkrun til einstaklinga í sjálfstæðri búsetu.

Á Sléttuvegi starfar þéttur og samheldinn starfsmannahópur og tökum við vel á móti nýju starfsfólki.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og stéttafélagi viðkomandi. 

Helstu verkefni

  • Starfað er eftir Velferðarstefnu Reykjavíkurborgar og hugmyndafræði heimahjúkrunar. 
  • Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, heimastuðnings í þverfaglegu samstarfi með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum.
  • Við leggjum áherslu á samfellda, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem stuðlar að auknu sjálfstæði og virkri samfélagsþátttöku.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ sjúkraliðanemi eða hjúkrunarnemi (Staðfesting á námi)
  • Viðkomandi þarf að hafa náð a.m.k. 18 ára aldri. 
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur. 
  • Þekking á Sögu sjúkrarskrárkerfi er kostur.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði. 
  • Íslenskukunnátta (B1 skv. evrópska tungumálarammanum)
  • Hreint sakavottorð skv. lögum og reglum Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Logadóttir s: 823-9763 eða halla.logadottir@reykjavik.is

Apply