Back to the jobs page

Dalskóli- sérkennari

Dalskóli grunnskólahluti auglýsir eftir sérkennara á yngsta stig skólans. Staðan er laus næsta haust.

Fullt starf Dalskóli 113
Apply

Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili. Í skólanum eru rúmlega 500 börn á grunnskólaaldri frá 1.bekk - 10.bekk.

Skólinn er staðsettur í Úlfarsárdal í nýrri og glæsilegri byggingu neðst í dalnum.

Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga og er þróunarskóli í leiðsagnarnámi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Við hvetjum þó alla áhugasama sérkennara að sækja um starfið.

Helstu verkefni

  • Vinna með börnum sem þurfa stuðning
  • Leiðsögn og stuðningur til starfmanna
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna að einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir
  • Sinna verkefnum sem tengjast verkefnum innan skólans sem yfirmaður felur honum.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.

Hæfniskröfur:

  • Sérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Menntun og hæfni til almennrar kennslu með fjölbreyttar þarfir nemendahóps.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort- bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið veitir Auður Valdimarsdóttir skólastjóri í netfanginu audur.valdimarsdottir@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Apply