Back to the jobs page

Skemmtilegt sumarstarf á íbúðarkjarna í breiðholtinu

Stuðningsfulltrúi óskast í sumarstarf á íbúðakjarna í Breiðholtinu í 80% - 90% starfshlutfall. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir fólk sem elskar að vinna með fólki. Unnið er á fjölbreyttum vöktum.

Fullt starf Íbúðakjarni Tindasel 1 109
Apply

Óskað er eftir öflugum stuðningsfulltrúa í afleysingar í sumar en einnig fyrr. Unnið er á dag, kvöld, helgar og næturvöktum.

Í Tindaseli er lögð áhersla á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að lifa sjálfstæðu lífi. Áhersla er á að veita ávallt framúrskarandi þjónustu. Í boði er spennandi starf þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf. Unnið er eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Umhyggja og þolinmæði.
  • Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar.
  • Stytting vinnuvikunnar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sara Björk L Gunnarsdóttir forstöðumaður. sara.bjork.l.gunnarsdottir@reykjavik.is

Apply